|
|
||||||||||||||||||||||||||
|
1. Vegagerðin sér um allan snjómokstur á þjóðvegum. Vegagerðin greiðir ekki kostnað við snjómokstur sem til hefur verið stofnað án hennar samþykkis. 2. Vegagerðin greiðir allan kostnað við mokstur mikilvægra samgönguleiða eins og sýnt er á kortunum hér að ofan. 3. Vegagerðin greiðir hluta kostnaðar við snjómokstur á öðrum þjóðvegum (stofnvegum og tengivegum) en getið er í 2. gr. þegar beðið er um hann og greiðsla mótaðila hefur verið tryggð, enda komi moksturinn fleiri vegfarendum til góða en þeim sem um hann biður. Um skiptingu þessa kostnaðar gilda sérstakar reglur sem gefnar eru út af Vegagerðinni. Óskir sveitarfélaga um slíkan mokstur ganga að jafnaði fyrir óskum einstaklinga. Vegagerðin tekur þó ekki þátt í kostnaði við mokstur á hverri leið oftar en þrisvar í viku. 4. Þegar vegur er opnaður er stefnt að því að hann nái að þjóna morgunumferð á hverju svæði. Lengd þjónustutíma er háð umferð á hverjum stað. 5. Heimilt er að fresta mokstri ef veður er óhagstætt, eins og í snjókomu, skafrenningi eða þegar slíkt veður er fyrirsjáanlegt. Er þá mokað næsta dag sem veður leyfir. Vegagerðinni er heimilt
að fækka mokstursdögum eða leggja mokstur niður
um lengri eða skemmri tíma ef kostnaður við hann verður
óhóflegur. Slík fækkun verður auglýst
vel alls staðar þar sem gefnar eru upplýsingar um færð.
|
Upp |
Uppfært 01.03.2002